bloggið mitt

24.09.2011 16:12:45 / agnesengill

langt síðan síðasttttttttttttt

jæja þá er komið að því að skrifa obobobbb :lol: er ekki með neitt mikið enn svona allveg smá ég var að gista hjá Arneyuog Sunna var líka meðokkur það var rosa stuð og við borðuðum 1/5 kg af hlaup bangsum hahah;) og nú er legó hópurinn kominn í gang. fimleikar eru líka byrjaðir þessi er flott
þetta er  Shawn Johnson   

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 16:03:48 / agnesengill

Bara prufa

Ég er ekki búin að blogga svo lengi að kannski eru allir hættir að lesa hjá mér.
Nú á ég bráðum afmæli og ég ætla að halda upp á það í Reykjavík svo Rósa og Kristján og Eyþór og Kristín Ösp og Ólafía Rún geti komið.
Mamma og pabbi ætla að taka íbúð svo við getum haft afmæli þar en samt vill Kristján hafa það heima hjá sér.
Ég ætla svo að hafa náttfatapartí þegar ég kem heim fyrir vini mína en ekki venjulegt afmæli.
Heyrumst seinna og ég ætla að reyna að fara aftur að skrifa hér.
:p:p:p:p:haha::haha::haha:8)8):haha::haha::haha::p:p:p:p:lol::lol::lol::lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 13:58:46 / agnesengill

Í skólanum

Ég er búin að vera lengi í Reykjavík og þar var ég í Laugarnesskóla í 4.S.  Rósa og Kristján eru líka í Laugarnesskóla en ekki í sama bekk og ég var í.
Ég fékk líka að æfa bæði fimleika og batminton. 
Nú er ég komin heim og búin að hitta vini mína.  Ég er líka byrjuð í fimleikum og fótbolta og svo er ég í tónskólanum.  Á morgun og hinn eigum við Rósa Diljá að taka samræmd próf.  Það er sko leiðinlegt.:whut:



» 3 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 14:53:57 / agnesengill

brúðkaup

  Nú erum við komi úr brúðkaupinu hennar Díu  .  Ég fór í kirkjuna í Skálholti. Það er rosalega flott kirkja. Ég var í fína brúðarmeyjarkjólnum mínum þó ég væri ekki brúðarmey.  Sigrún Birna og Rósa Diljá voru líka í sínum kjólum.   .  Þetta var rosa flott brúðkaup og Brynjar Logi var hringaberi.    Ingvar Jökull átti ekki að gera neitt nema vera sætur og hann var ekki hress með það og grét bara og vildi vera hjá mömmu sinni.   
Það var gaman í sumarbústaðnum.
Sjáumst seinna
  

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 11:36:07 / agnesengill

Puttinn

Hæ !  Nú er mamma að skirfa fyrir mig því ég er búin að vera meidd í puttanum í viku.  Ég tognaði í löngutöng og hef ekki getað verið í íþróttum eða spilað neitt á klarinettið síðan í síðustu viku.:( En ég er að fara að hitta aftur hjúkrunakonu í dag og þá losna ég kannski við hólkinn sem hefur verið notaður til að styðja við puttann á mér.  Mér er samt enn þá illt :s Mamma segir að ég verði bara að herða mig og hún lét mig spila á klarinettið í gær þó ég gæti það næstum því ekki, því það var svo vont.
Skotta er orðin alveg hress og bæði borðar og stekkur upp á húsgögn eins og hún gerði alltaf áður en hún fór í aðgerðina.  Hún er líka farin að fara smá út.  Snælda er enn þá aum og hefur lítið farið út en henni á líka eftir að batna eins og Skottu.
Jæja ég er að fara til hjúkkunnar.
Heyrumst seinna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 11:12:59 / agnesengill

Skotta

Sko nú er hún Skotta búin að fara í uppskurð.:cry:  Það er búið að taka hana úr sambandi af því það er svo vont fyrir ketti að taka pilluna og við viljum ekki að hún fæði kettlinga.:s  Við pabbi fórum með hana til dýralæknisins og hún var mjög slöpp þegar hún vaknaði.  Hún mátti ekki borða áður en hún fór og ekki heldur þegar hún kom heim.  Svo borðaði hún voða lítið þegar hún var að hressast.  En núna er henni að batna og í nótt svaf hún hjá mér eins og venjulega en ekki inni í tölvuskáp eins og hún gerði fyrst.
Skrifa meira seinna
Bless:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 13:20:12 / agnesengill

Systir mín farin

Nú er systir mín farin :whut: Hún er sko ekki alvöru systir mín, það var Konstanze skiptineminn sem var hjá okkur í fyrra.  Hún var í heimsókn en svo fór hún í gær :cry:
Mamma er líka að fara aftur til Reykjavíkur og verður ekki heima um helgina svo ég verð bara með pabba og Úlfari Kára.  :$
En það getur nú líka bara verið gaman segir mamma.
Það er frí í skólanum á föstudaginn og þá segir mamma að ég eigi að vera með pabba í vinnunni en kannski get ég líka bara verið heima eða eitthvað.  Ég vil ssamt ekki vera ein heima og kannski vill Sigrún Birna vera hjá mér. 8|
Ok bæ :s


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 12:11:32 / agnesengill

Skólinn

Nú er ég byrjuð í nýjum skóla eða í nýju skólahúsi.  Bekkurinn minn heitir 4.R og það er gaman eða allavega fínt.  Ég er í nýsköpun og þar erum við að finna upp allskonar hluti.  Ég er byrjuð að læra á klarinett og það er frábært.
Jæja ég skrifa meira bráðum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 11:10:59 / agnesengill

frá Búlgaríu

Baddi og Sigrún Birna eru búin að blogga frá Búlgaríu.  Það er hægt að komast á bloggin þeirra hérna í listanum mínum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 17:54:14 / agnesengill

Eftir brúðkaupið

Nú erum við búin að vera heima nokkuð lengi.  Það var rosalega gaman á Humarhátið og þá var mikið grillað.  Svo voru Svanur og Tanja hjá okkur með fallegustu stelpu í heimi hana Ólafíu Rún í heila viku þangað til brúðkaupið var.

Í brúðkaupinu   var rosalega gaman og ég var í flottasta kjól í heimi með rosalega fallegan blómvönd.  Rósa Diljá var líka með blómvönd og það var svona lítill brúðarvöndur þetta voru einmitt svona flottar rósir eins og þessar. 
Það var gaman í veislunni og við sungum og dönsuðum lengi svo fóru Baddi og Vigdís og Sigrún Birna til Búlgaríu og það er rosalega gaman hjá þeim en við erum að passa Snældu.


Núna er rigning og leiðindi hér en gott veður hjá þeim.




» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 22:41:25 / agnesengill

Heima

Hæ nú erum við komin heim frá Búlgaríu 
Það var rosalega gaman þar og ég gerði svakalega margt skemmtilegt   Ég ætla samt að skrifa um það seinna því ég er orðin svo syfjuð í kvöld. Ég er byrjuð að gera allt sem ég geri á sumrin og það er dálítið mikið, ég er á sundæfingum kl. 11  og svo hjóla ég beint á frjálsíþróttaæfingu kl. 12   og svo fer ég yfir á fótboltavöllinn kl. 13 og á fótboltaæfingu  .  Á morgun er svolítið frí því þá er ekki sundæfing.
Ég fór samt ekki á fótboltaæfingu í dag því þá ætlaði ég í fjársjóðsleit með Menningamiðstöðinni en svo var rigning og við fórum í bíó í staðin, og þá var einmitt dregið um búninga í öllum fótboltamótum í sumar og ég veit ekki hvort ég má vera með af því að ég mætti ekki á æfingu í dag:( Mamma segir samt að ég fái örugglega að draga bara á morgun í staðinn.
Ok góða nótt í bili.    

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 12:17:12 / agnesengill

Sumarferðir

Nú eru allt sumarferðir í skólanum mínum og það er rosalega gaman.  Það far frábært í ferðinni í Örævin sérstaklega í kajakaferðinni en kvöldvakan var ekkert sérstök  Svo var ég í dag í nautaferð í Grænahrauni og á morgun er leikrit og svo útidótadagur og náttúrudagur.  Ég missi samt af göngunni yfir Krossbæjarskarð því þá verð ég á leiðinni til Búlgaríu :haha: :haha: :haha:

Ég er búin að fara með allt klinkið mitt í bankann því ég er búin að safna klinki í allan vetur og ég átti meira en 11 þúsund og svo á ég pening síðan á afmælinu mínu svo ég á fullt af peningum til að kaupa Levur fyrir.  Ég hlakka sko rosalega til 8) 8)

Bæ bæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 16:50:35 / agnesengill

Ég fæ nýjan síma

Við gáfum Samúel rosa flottan síma í afmælisgjöf   og hann gaf mér gamla símann sinn.  Hann er dálítið flottari en gamli síminn minn og batteríið endist örugglega lengur. 
Nú er komið vor og við erum búin að setja upp trampólínið  
Það er mikill munur.
Ég var að sýna á vorsýningu hjá Fimleikadeild Sindra í gær og það var mjög gaman.  Sigrún Birna var líka að sýna.    Okkur gekk báðum vel.

Samúel stóri bróðir minn varð 20 ára í gær.    Hann á afmæli sama dag og forsetinn.   

Ég og vinir mínir Arney, Elín og Sverrir vorum að æfa okkur fyrir kvöldvöku en nú verð ég að drífa mig í fótbolta  

  








» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 15:51:37 / agnesengill

Amma og afi

ég er kannski að fara til ömmu og afa í sveitina það  verður gama n ef við förum þetta er mjög sutt tblogg
bæ í bili  


  

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 15:40:08 / agnesengill

Fótboltamót

Hæ !
Ég var að koma af fótboltamóti í gær.  Við fórum á Reyðarfjörð að keppa og það gekk sko ekki neitt vel.  Við unnum ekki neitt og það var ekki gaman. :s :^)
Samt var gaman í ferðinni.  Ég fór með Arneyju bekkjarsystur minni því mamma og pabbi komust ekki með.  Við spiluðum í risastóru fótboltahúsi á gervigrasi og það var mjög kalt þar og þakið lak svo það var eiginlega rigning inni. :$
Svo fór ég með fótinn á milli í svona rist í sundi í dag og reif aftur tána á mér en ekki svona mikið eins og síðast og það þurfti ekki að sauma.  Þetta er eiginlega bara leiðindardagur, ég þarf að passa að halda sárinu þurru og svoleiðis svo ég kemst kannski ekki aftur í fimleika fyrr en í næstu viku, eina ferðina enn. :^)
Jæja um helgina fer ég vestur og það verður örugglega gaman og þá fæ ég að sjá litla frænda minn í Djúpadal.  Ég get allavega hlakkað til þess.
Bless bless  ;) ;) ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 11610
Könnun
Hvaða nafn lýst ykkur best á ? Þau eru til í alvöru.
Níðbjörg Njóla
0 atkvæði

Ljótur Ljósálfur
0 atkvæði

Náttmörður Neisti
2 atkvæði

Venus Vígdögg
0 atkvæði

Himinbjörg Hind
0 atkvæði

Ljótun Hlökk
0 atkvæði

Hildiglúmur Bambi
1 atkvæði

Reginbaldur Rómeó
1 atkvæði

Ormheiður Pollý
0 atkvæði

Dufþakur Dreki
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 5
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Bestu leikjasíðurnar
RSS tengill